Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Alveg tippigal
1.8.2008 | 11:36
þetta var nú alveg til að toppa allt.
Gaman að fá þessa snillinga hérna heim og sjá þá spila við okkar menn.
Ég er ekkert úr hafnarfirði en Áfram FH.
![]() |
FH mætir Aston Villa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hlutabréf Exista hafa lækkað um 83% á 1ári
31.7.2008 | 17:12
30júlí í fyrra varð verð Exista 38,75kr og það er nú 6,45.
Þetta þýðir að verkamaður sem hefur safnað saman 1miljón og treyst þeim Grandabræðrum fyrir þeim á 166þúsund eftir.
Ég vona að fjármálaspekúlantarnir sem vinna þarna séu stoltir af sér.
Virðast ekkert kunna nema að kaupa og vona hið besta.
![]() |
Exista tapar 4,2 milljörðum króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gott að gera þetta á besta degi ársins
30.7.2008 | 13:49
Skattayfirvöld eru nú ekki vitlaus á láta okkur hafa yfirlitið svona milli júlí og ágúst og það er alltaf löng helgi fyrstu helgina í ágúst.
Þetta er útsmoginn skattpíning sem við verðum fyrir. Hvar mætti skera niður.
Atvinnuuppbyggingarbull, þjóðkirkjuna, landbúnaðarstyrki, helming af útanríksisráðuneytinu og svo leggja niður alla tolla og 5. tekjuminnstu skattanna. Fækka skrifstofufólki
Virðisaukaskattur skilar 35% tekna ríkisins, svo er það tekjuskattur uþb. 22%, vörugjöld 12%, tryggingargjöld 10%, tekjuskattur fyrirtækja, fjármagnstekjuskattur 6%, eignaskattar 2% (búið að leggja niður) og aðrir skattar 4% (þessa skatta ætti að leggja niður)
Bara um að gera að hafa háa skatta sem allir geta kunnað á. Virðisauka ætti að hækka uppí 25% eða lækka í 20% og hafa á allar vörur eins. Tekjuskattur einstaklinga ætti að vera 35% eða 40% ekki bara eitthvað á milli með tveimur aukastöfum. Vörugjald ætti (helst að leggja niður) en að öðrum kosti að vera það sama á allar vörur og einfalt í útreikningum.
Persónuafsláttur ætti að breytast í heilum þúsundum.
Bifreiðargjöld eru dæmi um hlægilegan skatt, meðal Jón þénar kannski 3 mil. eftir skatt og greiðar rúma 1mil. í skatt, hann á bíl og borgar 5000þ í ríkið í hvert skipti sem hann tekur bensín og fær svo sendan reikning 2 á ári fyrir undir 10þ. gott að viðkomandi fær ekki sér bréf fyrir hverjum 10þ. af þessari rúmlega milljón sem hann borga á ári eða rúmlega 100 bréf á ári. munurinn á að hækka skattana hans um 2% væri nánast ómælanlegur og það á engin bíl sem ekki þénar.
![]() |
Álagningarseðlar aðgengilegir í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskiptabann á Kína
29.7.2008 | 14:41
Ég vill bara að við hættum að versla við Kína fyrir fullt og allt og stofnum ný samtök ríkja sem virða lýðræði og mannréttindi, málfrelsi, trúfrelsi (ísland verður að losa sig við þjóðkirkjuna) og svo framvegis.
Svo eiga þessi ríki bara að hafa fríverslun og há tolla gagnvart öllum öðrum, þá myndi fátækt ríki sem væri með lýðræði og mannréttindi kannski aðeins að laga mannréttindi og þá væri það komið með fríverslun við vesturlönd og gang voða vel.
Þannig gætum við náð því fram að allstaðar kæmist á lýðræði og mannréttindi. Þátttakendur frá byrjun væru.
Evrópa, Norður Ameríka, Japan, Suður Kórea, Tæpei, Ástralía, Singapúr, Indland (ef þeir vilja hætta ríkisrekstri) Írak, Ísrael, einhver ríki í Afríku og mest öll Suður Ameríka og svo spurning með Rússland, þetta myndi setja einræðisríki alveg út úr öllum viðskiptum og sérstaklega gott með vopn td.
Þetta hefði GATT átt að vera eða UN eða EU en með því að taka inn komma og fasistaríki verður svona samstarf að engu.
![]() |
Litlar líkur taldar á tollasamkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ole ole ole ole ole!!!
28.7.2008 | 09:36
Vonandi þýðir þetta að við fáum ost, camibert, gráðost, kjúklingabringur, svínakódilettur, hakk 9-15% og skinku og fleira á undir 700kr/kg.
Aldrei betri tími í þetta en strax, krónan er veik og þegar kreppir að fer ákveðin endurskipulagning hagkerfisins fram. Lækkun matarverðs virkar svo vel á heimilin og mælist sem neikvæð verðbólga á móti hinu.
Er verðbólgan vandamálið eða verðið?
![]() |
Tvöfalt meiri innflutningur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
168,8 Okran.is -3 með Bensínfrelsi
17.7.2008 | 10:15
Vona að fólk fari að versla þar sem það er ódýrast.
![]() |
Eldsneytisverð lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
171-173kr. Orkan.is
14.7.2008 | 17:36
Verslum nú við þá sem eru alltaf ódýrastir. Vona að eitthvað olíufélag hækki ekki.
Ég skil ekki fólk að vera að versla á N1 ef eldsneytið kostar 5kr meira L og menn eru að kaupa 60L þá er þetta kannski bara 300kall, af því að neytandanum er alveg sama þá er verðið svona 5kr. hærra á Íslandi en ella. Ef keypt er 1.000L á ári sem kosta 5-10kr. meira en annars verður 5.000-10.000kr á ári, væri ekki nær lægi að nota höfuðið aðeins og vinna einn dag minna á ári.
Held líka að fyrirtæki ættu að fara að hugsa aðeins, starfsmenn þeirra að safna punktum og kaupa dýrar bensín en annars.
Mér finnst líka að það ætti að taka fyrir þetta, að láta eitthvað vera dýrar og þá tekur maður þátt í happadrætti eða fær punkta sem eru ígildi peninga. Hélt að bara seðlabankinn hefði leyfi til að gefa út peninga og spilavíti væru bönnuð. Taka peninga af okkur í bankanum til að borga fyrir tónleika og gefa námsstyrki fyrir fá útvalda, þetta er eitthvað skrítið allt saman. Ég vill allavega ekki húfur og handklæði með auglýsingum í bankanum mínum ég vill bara góð kjör, ég get keypt hitt í fatabúð.
![]() |
Eldsneytisverð snarhækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Göng Göng Göng
11.7.2008 | 09:54
Ef við segjum að 14.000.000 bílar hafi farið um göngin og þessi ökutæki hafi sparað sér 50km eða 5L af eldsneyti erum við komin í 70mil. L af eldsneyti sem kostar á núvirði td. 175kr þá erum við komin í 12,25mia. en til gamans má geta að göngin kostuðu ekki nema 4mia. en það var á allt öðru verðlagi og svo kostar rekstur svona gangna eitthvað og af því að maður þarf að borga framkvæmdina fyrst og fær svo peningana inn á lengri tíma þá þarf maður að borga vexti líka.
En er ekki tímabært að við förum að skoða göng undir Holtavörðu, Hellisheiði og til Vestmannaeyja?
dæmi má nefna að Héðinsfjarðargöng eru 2 og 6km hvor undir Hellisheiði væri ekki nema 1 göng 8km og sama má segja um Hellisheiði. Umferðin er ekki minni þar og myndu 1föld göng tæplega anna umferðinni en þetta er mikið öryggistæki að vetri til. 5.000 bilar á dag 500kr á mann er 1mia á ári. Annars má líka byggja betri vegi 2falda, upplýsta og 120km hraða á þessum stöðum, dæmin sanna frá norðurlöndunum að svo leiðis vegir eru öruggari, en þarf ekki að gera úttekt á þessu?
Svona framkvæmd getur rekið sig og notendurnir njóta góðs af þessu það er fólkið og þá erum við komin með samfélagslegan ávinning. Dæmi má nefna með húsnæðisverð uppá skaga og svo virkar samfélagið bara betur þegar menn geta valið um að vinna á Skaganum eða í borginni, þetta skilar augljóslega meiri skatttekjum og fleira.
![]() |
14 milljónir ökutækja um Hvalfjarðargöngin á tíu árum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Betur má ef duga skal
10.7.2008 | 17:25
Það er einmitt þarna sem hnífurinn virðist standa í kúnni.
Við þurfum að fá fjármagn inní landið, svið virðist sem fjárfestar séu ekki að trúa á íslensku bankana, enda treysta fjárfestar sér ekki í nokkurn skapaðan hlut þessa dagana.
Að hækka vexti er eins og að vera með góða brekku og ekkert vatn en telja að vatnið muni flæða niður, vaxta munurinn er þarna brekka og vatnið eru peningar.
En til að styrkja krónuna þarf að fá einhvern til að kaupa íslenskar krónur, hlutabréfamarkaðurinn gefur ekki tilefni til þess ennþá virðist vera en 15% vextir á ríkisbréfum gætu lokkað erlenda fjárfesta til landsins og fengið almenning til að spara í gegnum viðskiptabankann sinn. Annað styrkir gengið og slær þannig á verðbólgu, hitt slær beint á eftirspurnina og lækkar þannig verðbólgu.
Svo er hægt að nota þetta fé til að styrkja gjaldeyrisvaraforðan, borga upp aðrar skuldir eða lána þetta út í gegnum viðskiptabankanna eða ÍLS, sem mætti alveg fara að lána til endurfjármögnunar og 90-95% þá væri óþarfi að gera fólk gjaldþrota að óþörfu eða gera það að verkum að það verði að flytja svona í kreppunni, sem gerir kreppuna bara verri og fær húsnæðisverð til að lækka sem má ekki gerast, því þá verður 90% af fasteignaverði færri krónur og þá getur skuldarinn ekki endurfjármagnað skuldir sínar.
Með þessu væri ríkið að taka ábyrgð og taka lán í íslenskum krónum og á þeim vöxtum sem þenslustefna án aðhalds hefur kallað yfir okkur.
![]() |
16 milljarða útboð ríkisbréfa í júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þvinganir frá stóra bróður
10.7.2008 | 11:39
Svona er þetta alltaf sá stóri vill nota stærð sína til að segja öðrum fyrir verkum.
Það kemur engum við nema íslenskum kjósendum hverja við veljum til að stjórna og hvað þeir ákveða að það eigi að veiða.
Hvernig væri að ESB hætti að nota allt of mikinn áburð og taka þannig allt súrefni úr sjónum í hring um sig og hætti að vera með viðskipta þvinganir á 3 heiminn, neitar að kaupa af þeim mat, föt og flest allt sem þeir geta framleitt. Þetta er bara viðskiptastríð og þau eru til þess gerð að svelta óvininn af fjármagni og það er að takast ansi vel.
![]() |
ESB: Hvalveiðar þvælast fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |