Færsluflokkur: Bloggar

Skemmtileg pæling

Er það sama hvort um er að ræða tvöföld hringtorg eða ekki? 

Hvort er þá þjóðhagslega hagstæðara?

Er gerður greina munur á ljósum með og án beygjuljósa til vinstri?

Og gert greinamunur á meiri umferð á undan eða eftir?

Hvort þolir meiri umferð?

Nei segi bara svona.......


mbl.is Slysum fækkar með hringtorgum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En viðskiptastríð á 3 heiminn þarf ekki að hætta því

Það sem er þróun í fátækjum ríkjum er erfiðast eru tollmúrar Evrópusambandsins á landbúnaðarvörum, þar eru óunnar vörur tollaðar lægra svo að vélvæðing eigi sér nú ekki stað.  Svo dæmi sé tekið er Sierre Lione nærst stærsti útflytjandi á bómull í heiminum, hún er tínd með höndum sem gerir hana að hæsta gæða flokki en ef maður fer útí búð og kaupir bómull þar, stendur á pakkanum Made in Germany!!! Til eru fleiri dæmi tildæmis sömdu Kenýa menn við Hollendinga fyrir hönd ESB um að fá að flytja örfáar blómategundir til ESB svæðisins og hafa landbúnaðarhéröð þar blómstra síðan, miðað við það sem áður var. 

ESB gerir annað sem er ennþá verra það eyðileggur markaðina fyrir utan ESB  með því að niðurgreiða útflutning (úr ESB og EES því miður) niður.  Þannig að heimsmarkaðsverð á matvælum verður lægra en framleiðslukostnaður niðurgreitt með sköttum á tækni og iðnvæddar atvinnugreinar ríku landanna.

Þessu berum við Íslendingar einnig ábyrgð á með því að stunda ekki frjálsa verslun og ekki síst með að vera aðilar að ESS-bandalaginu.

Maður ristir ekki annan mann á hol og bíður honum far á slysó og þykist svo vera góðmenni. 


mbl.is Staða Íslands eykur skyldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn er minnst fjórfaldur


Áskrift í Danmörk 

hringja í öll númer í Danmörku 69aurar (8,4kr) gat lækkað það í 39aura (4,8kr) en þá hækkar startgjaldið úr 25aurum í 50aura (3kr-6kr).  SMS kostaði 19aura eða (2,3kr) Þarna má einnig borga 49kr á mánuði (599ísk) og fá SMS á 1aur (12íslenska aura)  

 http://www.cbb.dk/cms.ashx/produktet/priser.html

Á Íslandi kostar frelsi 16kr mín í GSM eigið símafélag og 24kr í hitt símafélagið og SMS kostar 10kr, er það bara ég eða er þetta ekki 4-5sinnum dýrar og það eru bara 2 félög með GSM þjónustu.

 Kveðja JB

 


mbl.is Farsímaþjónusta dýrust á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort kom fyrst hænan eða ???

Lækkun hlutabréfa er eins og verð lækkun á öllu öðru sökum þess að meira er selt en keypt, nú afhverju er menn að selja þeir vilja fjárfesta erlendis og þegar einn fer í að gera þetta gera það allir því fyrr því betra.  Þess vegna er það spá um veikara gengi sem fær menn til að selja ekki öfugt. En afhverju menn vilja selja nú, veit ég ekki alveg, hefði verið rökréttara eftir svona 3-6mánuði samkvæmt verðbólgu og stýrivöxtum, en svona er þetta, best að vera fyrstur.
mbl.is Hlutafjárdýfan tekur alla með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman að sjá við erum betri en danir í eitthverju

Það var nú svosem ekkert meira en fyrirsögnin

 NIÐUR með ALLA tolla!!!!!!!!!!!!!!!!


mbl.is Kaupmáttur Íslendinga með því mesta samkvæmt skýrslu OECD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er atvinnurekandinn????

Það þarf að passa svona menn sérstaklega. 

Svakalegt að reyna að banna mönnum að vera í verkalýðsfélagi


mbl.is Upphlaup á félagsfundi hjá félagi vélstjóra og málmtæknimanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læra að spila boltanum

Að mínu mati ættum við að reyna að læra að spila boltanum á auðveldustu sendingaleiðir og hætta að sparka langt sérstaklega þegar við erum yfirleitt aðeins með einn sóknamann. Við getum ekki yfirspilað lakari þjóðir og við getum ekki haldið boltanum gegn þeim betri og þess vegna endar þetta alltaf í tómu tjóni.  Vona að nýjum þjálfara gangi vel í starfi og tali kjark í mannskapinn og muni að sókn er besta vörnin.
mbl.is ,,Íslenska landsliðið þarf að verjast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta verk ráðherra var að lækka lánshlutfall úr 90%

Fyrst tekur hún lánamöguleika af þeim verst settu sem hafa getað reitt sig á ÍLS.  Þar sem ÍLS lánar ekki meira en 18mill, þá er þetta augljóslega bara lánastofnun fyrir þá sem eru að reyna að kaupa 70-90m2 íbúð.  En það er svona sem ráðherrann vill hafa þetta enga möguleika á að kaupa bara vera á spena ríkisins. Helvíti hart þegar ÍLS er fullur af peningum sem lífeyrissjóðirnir eiga og bankar hafa meðal annars fengið að láni svo þeir geti lánað okkur hinum. Vona bara að ríkið fari ekki að kaupa íbúðir og búa þar með til eftirspurn á þeim markaði og þar með fá verðið til að hækka meira sem svo mælist sem verðbólga.
mbl.is Viðfangsefnið er að snúa þróun á húsnæðismarkaði við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er þessi óþarfi hluti keppninnar senn á enda

Ef liðinn sem eru nefnd fyrst í hverjum riðli komast áfram, þá fóru riðlarnir eins og við var búist það er að segja A og B liðinn komust öll áfram.  Vildi að þetta væri í deildum og þá gætu liðinn í efstu deild farið á heimsmeistara keppni. 4 deildir með 12 liðum eða 5 deildir með 10 liðum.  Þá sæti maður spenntur að bíða eftir leikjum í efstu deild. Í stað þess að ég horfi aldrei á þetta, nema Ísland audda :-D Nema þegar þeir spila við "skyldu sigra" eins og Liechtenstein hehe
mbl.is Spánverjar tólfta þjóðin til að tryggja sér EM-sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglega léleg frétt

númer 1 þá er meðalverðbólga 3,5-4% síðustu 5árin

númer 2 þá væri við hæfi að nefna að þegar stýrivextir lækka eins og spáð er þá veikist gengi krónunnar og það er spáð 10-15% veikingu krónunnar á ári næstu 3 árin.

Það er því best að vera með fasta vexti og helst án uppgreiðslu næstu 2-3árin og þá munu lánakjör verða miklu betri og þá skuldbreytir maður eflaust láninu. 

Þar af leiðandi er fréttin mjög léleg


mbl.is Hagstæðara að taka óverðtryggt lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband