Af hverju tala menn ekki hreint út

Sakna þessi í svona umræðu að menn tali hreint út og segi hver launin eru og hvað þau ættu að vera, en það er náttúrulega ekki hægt af því að maður fær hærri laun fyrir að vera gamall, stundum kallað reynsla til að fríkka uppá það, svo fær maður auka 3 frídaga á ári fyrir hver 10ár og svo er það sumaruppbót og jólauppbót, skil ekki hvað er verið að flækja svona mál alltaf. hver er munurinn að fá 40þ í jólauppbót og sumaruppbót og að fá 6.666kr meira á mánuði.

Ég athugaði í þessu samhengi hvað Jordmodre fá í Danmörku og fékk út 18.600-25.600 DKR eftir aldri eins og vanalega, þetta reiknast mér að séu 222-306þús. á mánuði og af því er borgað 39-41% skattur það er reiknað með persónuafslætti þannig að útborgað er 11.300-15.000 meðal gengi síðustu 3ára er 11,96kr. og þá gerir þetta 134.900-179.500 eftir skatt.

En þar þarf ekki að borga augnlæknir og öll önnur heilbrigðisþjónusta frí nema tannlæknir. Einnig eru almenningssamgöngur betri og svo mætti lengi telja. En aðal vandamálið er samt hvað við fáum lítið fyrir peningana okkar vegna tolla sem við leggjum á okkur sjálf sérstaklega matur kjúklingur, hakk ostur og annað er helmingi til 3-4 sinnum dýrara hér.

En það þarf að fara að einfalda þessi mál.


mbl.is Mikil vonbrigði meðal ljósmæðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernær kemur sú frétt? kl14:30

Eru menn ekki að lofa uppí ermina á sér þegar þeir segjast ætla að uppfæra eitthvað og ekkert gerist.

Frétt RÚV af málinu 

BHM og ríkið semja

Fulltrúar 23 stéttarfélaga innan Bandalags háskólamanna og sáttanefnd ríkisins skrifuðu undir kjarasamning í gærkvöldi í húsakynnum ríkissáttasemjara. Að sögn Guðlaugar Kristjánsdóttur, formanns BHM hækka laun starfsmanna þeirra aðildarfélaga sem skrifa undir samninginn um 6%.

Guðlaug segir samninginn fela í sér kjaraskerðingu þar sem hækkunin sé engan veginn næg til að vega á móti verðbólguspám, en illskásti kosturinn hafi verið valinn af því sem í boði var. Samingstíminn sé þó stuttur, nýji samningurinn gildir til mars 2009 og strax verði hafist handa við að undirbúa næstu samningaviðræður.
 


mbl.is Háskólamenn að semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú meiri fréttaleysan

Þetta er engin frétt, þegar maður er með yfir 300.000.000 mans þá gerist ýmislegt.

Það hafa væntanlega verið framin 28morð þennan dag með skotvopnum, er það ekki meiri frétt.

En ég skil vel að áróðurs vélar flokkana vilji koma þessu á framfæri. 


mbl.is Máluðu slagorð gegn Obama á bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verja lýðræðið sama hvað það kostar hehe

þetta er nú meira ruglið, ef alþjóðasamfélagið gerir ekkert þá er það stórslys
mbl.is Mugabe sver embættiseið síðar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hefði aldrei átt að vera valin í landslið frakka.

Hvað ætla landsliðþjálfarar að gera þessi mistök oft, það á ekki að velja leikmenn eldri en 31ára, nema þeir séu alveg spes góðir og séu að spila 50 leiki á ári.

Svo ef maður er að velja svona gamla leikmenn þá þarf maður að velja unga þeim við hlið og vera tilbúinn í að skipta þeim út. 

En það er ómögulegt að vera skipta út í miðri vörninni í miðjum seinni hálfleik. Enda fóru allir illa með þessa vörn, Galls og Thuram, ég hélt að þetta væri grín áður en 1. leikurinn hófst.


mbl.is Thuram farinn heim til Frakklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að rannsaka þessi mál betur

Mér finnst aðallega að það þurfi að fara að rannsaka þessi brot miklu betur og refsingarnar þarf að herða til muna.

Það sama er vandamálið með morð og nauðganir að aðstæðurnar skipta öllu.

1. stigs 2. stigs morð og svo manndráp af gáleysi. 12ár, 6ár og 1ár

Það sama þarf eiginlega að gilda fyrir nauðganir, þetta hafa menn ekki viljað setja niður.

Er annar aðilinn eða báðir undir áhrifum gat leikið vafi á að um samþyki væri að ræða.

Þetta fyrsta og annað stig nota svo saksóknarar í USA til að bjóða helmingi lægri refsingu í staðin fyrir 50%-50% á hærri refsingu og málið fari fyrir dóm.

Hvaða sannanir liggja fyrir í málinu, þolandinn þarf að kæra strax og trúa á að til alvöru refsingar komi. Það er að segja 5-6ár. Svo þarf að taka upp 3brot og lífstíð á Íslandi, þá bætist 12ár á 3. alvarlega brot viðkomandi.

En það kostar mikið að hafa menn í fangelsi umb. 1 stöðugildi (3-4mil á ári). Það þarf því að setja reglur um að menn greiði fyrir eigin fangelsisdvöl eigi þeir þess kost. Svo þarf að auka vinnuna fyrir fanga þarna og hafa fleiri meðferðarúræði, við ávana og fíkniefnum, reiði og kynferðishegðun.

Allt þetta ætti að stuðla að færri nauðgunum enda kosta einstaklingar með andlega sjúkdóma ríkið mikið.

Að lokum ætla ég bara að spyrja.

Hvenær voru þessi lög síðast endurskoðuð? 

 


mbl.is Öryggishnappar á salerni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

172,6kr Orkan.is -3kr með staðgreiðslu

Um að gera að versla við þann ódýrasta og fá þetta verðvitund í gang.

 

http://www.atlantsolia.is/default.aspx

http://www.ego.is/

http://orkan.is/

Munið að N1 á Ego


mbl.is Verð á eldsneyti lækkar um 2 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirvinnubann?

Ef þeir vilja ekki yfirvinnu, eins og mér skilst á þeirra forsprakka,

af hverju fara þeir þá ekki bara í yfirvinnubann eins og Hjúkkurnar?


mbl.is Allt útlit fyrir verkfall hjá flugumferðarstjórum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugur selur Baugi

Er FL-Group að selja Banka sem sömu menn stjórna en vilja als ekki eiga meira en 40% í svo þeir þurfi ekki að eiga þetta alveg að selja eignir á milli sín.

Er með þessu verið að bjarga FL með að kaupa á yfirverði eða er verið að bjarga því bitastæðasta úr FL á undirverði?


mbl.is FL selur í fasteignafélögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100mil. € Er það fair price?

 Það er erfitt að segja til um hvort að þetta sé nóg til að ManUtd. Vilji selja manninn, en ég held að ManUtd ætti að hugleiða það alvarlega. 

Það er mikið að hæfileika ríkum mönnum hjá þeim Carrik, Hargraves, Nani, Park, Anderson á miðjunni og Teves, Rooney, Saha, Vont að búa til lið í kringum 1 mann.

Svo er vill hann fara svo myndi kannski spila með hálfum haus, kannski 150M € myndu gera það.

En þetta er ekki bara spurning um peninga heldur líka EGO, getur Real alltaf fengið allt sem þeir vilja?  En ef Man Utd. lætur þá ekki fá Ronaldo á 150€ kaupa þeir bara eitthvað annað á svakalegan pening og kannski meiðist bara kauði og hvað ætla þeir þá að gera?  Ekki var Beckam, Anelka, Figo og jafnvel Zidan góð kaup, ekki miðað við frammistöðu á vellinum, kannski seldust meira að treyjum, hvað veit ég.


mbl.is Þrettán milljarða fyrir Ronaldo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband