Skil ekki afhverju eldsneyti lækkar ekki hér.
15.8.2008 | 09:57
Hér er að neðan er tafla yfir bensín verð á íslandi sem var komið í 171kr þar af eru 46,7 vörugjöld með virðisauka, innkaupaverð gæti vel verið um 76-80 og svo er álagning félagsins, sem þarf að standa straum af flutningum og yfirstjórnun.
Það er allt gott og blessað en ef innkaupsverðið lækkar um 20%, þá er dreifingin sú sama og vaskur og gjöld breytast ekki og þá ætti verðið að fara niður í rúmar 150. Ég tek ekki krónuna inní enda hefur hún verið nokkuð stöðug í 150-160stigum síðan um páska.
Ekki hefur dreifingarkostnaður hækkað svona mikið, enda bara menn og tankbílar sem setja þetta á sjálfafgreiðslustöðvar. Þó það hækki um 10% er það bara 2kr. á lítra.
Það ætti að vera svigrúm til að lækka uþb. 10kr.
Þá | Nú | |||
Innkaup | 76 | 80 | 59,75 | 62,90 |
Dreifing,álag | 24 | 20 | 24 | 20 |
Virðisauki | 124,5 | 124,5 | 104,3 | 103,2 |
Vörugjald | 37,5 | 37,5 | 37,5 | 37,5 |
Virðisauki | 46,7 | 46,7 | 46,7 | 46,7 |
Ialt | 171,2 | 171,2 | 151,0 | 149,9 |
![]() |
Verð á hráolíu niður fyrir 114 dali tunnan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svöruðu "brjóstleguhæða tjaldbúðar borgararnir" ekkert fyrir sig
15.8.2008 | 00:40
Manchester dregur nafn sitt af latneska orðinu Mamucium, brjóstlaga hæðir, chester er svo engilsagnesk útgáfa á orðinu castra sem þýðir camp eða tjaldbúðir.
Skil ekki af hverju fréttamenn eru að þýða nöfn, það endar með að Vopnageymslan skorar mark hjá Nýjakastala, mér er ekkert að lítast á að Lifrarpollur eigi að keppa við spörfuglana á laugardagsmorgni.
![]() |
Midtjylland skellti Manchester City |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hækkað um 94% á 5árum
14.8.2008 | 17:10
,mest hefur einbýli í RVK hækkað 127%, svo fjölbýli í RVK 94% og minnst húsnæði utan RVK 75%. Verðbólga hefur verið 37% á þessum tíma.
20mil eign þá kostar núna 39mil í dag og lánið hefur hækkað um 8mill í 28mil. og því einstaklingurinn 11miljónir sem hann eignaðist á 5árum, eða fékk 183þ. á mánuði fyrir að eiga heima í húsinu sínu.
Ef notuð eru 3ár, þá hafði húsnæði hækkað um tæp 35%, þá hefur utan RVK hækkað mest 49%, einbýli RVK 34% og fjölbýli RVK 29% og verðbólgan var 27%
Mismunurinn er 6% hús keypt fyrir 3árum hefur hækkað í 27mil og lánið hækkað í 25,5 mismunurinn er 1,17mil eða hækkun umfram verðbólgu uppá 32.500kr á mánuði.
Verðbólga án húsnæðis 13,2% raunlækkun 10,6%, íbúðin hækkað í 20,52mil og lánið í 22,64mil, mismunur uppá 2,12mil. eða 176.667þ. á mánuði í heilt ár.
![]() |
Fasteignaverð hækkaði í júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvernig mælist verðbólgan
14.8.2008 | 08:54
Ef boðin er 1mil. í afslátt af undir 4mil. bíl,
hvaða verð er þá notað til að bera við verð frá fyrri mánuði?
Eru notaðir bílar með í vísitölu neysluverðs?
Svo er hlutfall viðkomandi vöruflokka bara endurskoðað nema á 2ára fresti, en þegar bíla verð fer á skrið þá dregst salan mikið saman, þá getur verð hækkun á Porshe sem seldi engan bíl þann mánuðinn haft áhrif á verðbólgu mælinguna. Þannig að verðbólgan sem gefin er út er bara viðmið til langs tíma, erfitt að sjá mikið úr henni nema nota minnst 3 mánuði helst 6 eða 12.
![]() |
Bílaumboð blása til sóknar í samdrættinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar er kreppan?
13.8.2008 | 12:54
Þetta er nú meiri brandarinn þessi kreppa, verður eflaust aðal grínið í næsta áramótaskaupi að kreppan kom aldrei.
Eina sem er að gerast að fólk er að læra að taka ekki allt of mikla áhættu, sem einstaklingar eða fyrirtæki.
4% hafa laun hækkað umfram verðbólgu á ári 15ár í röð 1995-2007, 60% meira af vörum fyrir sama pening ef við fáum minni launahækkanir en verðbólgu í 1 ár þá er það ekkert stór mál. Engin ástæða fyrir neinar stórar breytingar.
![]() |
Atvinnuleysi var 1,1% í júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Einfalt, markaðshlutdeild of stór, yfir 25% verður að finna nýja kaupanda.
Hvernig halda menn að hér muni skapast samkeppni ef "hagræðingar sameiningar verða alltaf leyfðar"
5 Aðilar, Kaupþing, Landsbankinn, Glitnir, Byr, SPRON, Sparisjóðirnir.
Ef það á að breyta þessu aftur í 3,4 fyrirtækja markað verður þetta eins og hjá flug, síma, olíu og tryggingarfélögum engin samkeppni eins og alltaf á ísland.
![]() |
Samruni SPRON og Kaupþings skoðaður nánar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stakkels konan, stakk manninn, stakk af, stakk sér til sund og var svo stungið inn.
7.8.2008 | 13:48
Stakkels konan
stakk manninn
stakk af
stakk sér til sund
og var svo stungið í steininn.
![]() |
Stakk kærastann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rugl, það er kosið á 4ára fresti
7.8.2008 | 13:43
þoli ekki þegar ríkistjórn tekur sér það leyfi að ákveða gerðir seinni ríkisstjórna.
Samanber búvörusamninga sem gerðir voru á síðustu mánuðum síðustu ríkisstjórnar.
![]() |
Vill stefnu til 12 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hækka í 80km frá Sæmundargötu
7.8.2008 | 12:10
Þetta er nú meira ruglið, þarna er 2-3-4 akreinar og menn eiga að keyra á 60km, svo er víða úti á landi hrikalegir vegir með holum og blindhæðum og beygjum sem má keyra 90km á.
Svo er það líka malarvegir sem gætu hafa skolast í burtu með holum, blindhæðum og beygjum sem má keyra 80km á, einbreiðir og óupplýstir og óruddir.
Þannig að það þessi kafli er ekkert öðruvísi en Ártúnsbrekkan.
![]() |
Á 147 km hraða á Hringbraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvenær var þessi samningur gerður?
6.8.2008 | 17:43
Þessir menn eru eitthvað að misskilja hvernig á að nota svona kaupréttarsamninga.
Þetta á að vera þannig að gengi félagsins er til dæmis 100 og þá er samið um að bankastjórinn geti keypt á því gengi eða 110 eftir 12mánuði, þetta er gert til að bankastjóri hafi sömu hagsmuni og hluthafar sem ráða hann til starfa. Þannig að ef hann kemur bankanum í 120 fær þá að kaupa 1milljón hluta á 110 þá græðir hann 10milljónir.
Ef þessir samningar eru ekki 4ára gamlir þá er þetta bara bull, svona hlutir hafa verið að koma óorði á kaupréttarsamninga á Íslandi.
En þeir sem voru að kaupa í kaupþing á undir 200 árið 2003-2004 hafa klárlega verið að græða líka endar gengi bréfanna í dag 707.
En það sem vantar í fréttina er hvenær voru þessir samningar gerðir?
![]() |
Stjórnendur Kaupþings kaupa bréf af bankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |